Sunday, July 27, 2008

Fór í útilegu um helgina ... gaman gaman - kajakaði, synti í sjónum,fór í draugaferð,veiðiferð ofl.

Getið tékkað á myndunum...set inn eina af mér og Rachel að kajakast...
nú tel ég bara niður dagana þangað til ég kem heim....16 ágúst...jibbíjúhú...

Wednesday, July 9, 2008

Búin að setja inn fleiri myndir - hér fáið þið smá sýnishorn af flugeldum hérna í USA-NU

og annað sýnishorn af því hversu góðar við Erna erum að syngja .... og dansa...í bíl

Saturday, July 5, 2008

smá sýnishorn frá vinkonunum í NY....


Við löbbum sko ekki í rigningunni....við erum LADIES!!!!

Erna KúlJó!!!!

Berglind SkúlSjó dræving in New York!!!!!


Komnar nýjar myndir í albúmið....Pís át

Tuesday, July 1, 2008

...og þá er ég komin í vikufrí...í þessu fríi ætla ég að skemmta mér með henni Ernu sem er að lenda núna eftir 3 tíma. Allt orðið klappað og klárt...búin að búa um rúmið...setja súkkulaði á koddann...borða súkkulaðið...og skúra gólfin.

Annars er það helst í fréttum að ég og tvær vinkonur ákváðum að flytja úr sveitinni Westborough í borgina Cambridge - fengum íbúð rétt hjá Central Square sem er mitt á milli Harvard og MIT ( algjörlega hugsað út frá efnilegum/velefnuðum mannkostum!!! hvað annað!!!). Erum búnar að vera að koma okkur fyrir-þurftum ekki að kaupa mikið - leigðum okkur trukk og fluttum búslóðina okkar frá westborough og yfir í borgina
(búslóð Berglindar = föt,stóll,borð,hreindýr).
hérna er svo íbúðin 344 Putnam Ave. (náði ekki betri mynd - úti á götu í bráðhættu !!! )
Aðal stússið undanfarna daga hefur verið að kaupa sjónvarp - ég stakk upp á því að við myndum bíða með það - þyrftum kannski ekki allt strax (þar sem að þær eru líka báðar með sjónvarp í sínu herbergi) - en það kom sko ekki til greina...og þar sem að ég bý með svo rosalegum kana stúlkum þá vildu þær STÓRT sjónvarp. - Fórum á Craigslist að skoða sjónvarp (þar sem fólk setur notað/nýtt og selur ódýrt) og enduðum á að finna eitt á góðu verði og hjúmonguss!!! - Gátum ekki náð í það sjálfar heldur þurftum að leigja okkur trukk til að ná í það...fengum það svo loksins í gær og byrjuðum að plögga það inn....kveiktum á því .... alveg rosalega gott hljóð..en...engin mynd.....og allavegana án þess að fara út í smáatriði þá er sjónvarpið bilað...hefur bilað á leiðinni..þe. í flutningunum eða að litla íbúðin okkar ræður bara ekki við svona massa sjónvarp... þannig að núna sitjum við uppi með risasjónvarp í stofunni okkar...kostar örugglega mikið í viðgerð...og líklega alveg jafn mikið að losa sig við það (fá trukk)....höfum sko algjörlega keypt "the cat in the sack" eins og þeir segja á enskunni!!! - vorum að breinstorma í gær hvað við gætum gerð við hana Sonju..(gáfum sjónvarpinu nafn) - gætum tekið út skjáinn og verið með svona brúðuleikhús....klætt sjónvarpið í og haft sem gæludýr...eða notað sem stóóóran myndaramma.....allar hugmyndir vel þegnar :)

En já...þýðir ekkert að gráta yfir þessu....Erna að koma , strönd á morgun....4 júli og jafnvel New York.....

Að lokum..mynd af mér og Sonju

- svona skemmtum við Sonja okkur vel í feluleik...gjúgg gjúgg...segir Berglind