Monday, August 25, 2008

Komin heim og byrjuð að vinna og skólast.....búin að setja inn myndir af heimsókninni...skora nú á hana Björgu/Darra og Jónu og co að vera duglegar að setja inn myndir frá ævintýrum þeirra í Danmörk og Spáni ...svo væri líka gaman að mamma setti inn myndir af sýnum ævintýrum...og pabba..;)

Thursday, August 14, 2008

Hér kemur smá sýnishorn af tónleikunum sem ég fór á ekki fyrir löngu...

John Mayer...sem var bara mjög skemmtilega furðulegur drengur....

og Jack Johnson sem er ekkert furðulegur ...en skemmtilegur

Tókst að ljúka 10 km hlaupi seinastliðinn sunnudag.... Falmout Road race er það kallað....gekk bara ágætlega .... kannski pinku of heitt og ég kannski pinku of kvefuð..og með aðeins of hvíta húð...náði mér semsagt í sólsting, kvefveiki og sólbrennslu ...geri aðrir betur-en það var gaman, fólk að sprauta á mann vatni á leiðinni..henda í mann appelsínur og kalla "þú lýtur vel út - koma svooooo" !!!

Annars er ég búin að pakka... og bíð bara spennt eftir að koma heim - sjáumst eftir smá....

Monday, August 4, 2008

Í dag giftust vinir mínir Ólafía og Ingþór sig...HÚRRA FYRIR ÞEIM... !!!! Gvuði sé lof að þau lifi ey lengur í synd!!!!

Þar sem að ég var ekki stödd þarna...þá skissaði ég upp hvernig ég held að þau hafi verið.....

Elsku Olla og Ingþór til hamingju með að vera orðin HJÓN!!!!!:)